Samantekt um þingmál

Kosningalög o.fl.

945. mál á 153. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að kosningalög séu skýr um framkvæmd og fyrirkomulag kosninga á landinu og að þau uppfylli það markmið, sem fram kemur í 1. gr. laganna, þ.e. að löggjöfinni sé ætlað að styrkja lýðræðið með því að viðhalda trausti á framkvæmd kosninga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar sem eiga að sníða af vankanta sem komið hafa í ljós við beitingu laganna. Meginbreytingar frumvarpsins lúta að ákvæðum kosningalaga um hæfisreglur kjörstjórna og kjörstjóra sem og utankjörfundaratkvæðagreiðslur.

Breytingar á lögum og tengd mál

Kosningalög, nr. 112/2021.
Lög um starfsemi stjórnmálasamtaka, nr. 162/2006.
Sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011.
Lög um Þjóðskrá Íslands, nr. 70/2018.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á útgjöld ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum.


Síðast breytt 15.09.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.